Almennar fréttir / 9. febrúar 2024

HSN opnar í Sunnuhlíð

Heilbrigðisstofnun Norðurlands mun formlega flytja heilsugæslustöð sína í húsnæði Regins við Sunnuhlíð á Akureyri þann 19. febrúar næstkomandi. Heilsugæslan verður með 1.840 fermetra til ráðstöfunar undir sína starfssemi sem staðsett verður á 2. hæð í heilsutengda þjónustukjarnanum Sunnuhlíð.

Heilsugæslan hefur verið í Amaro-húsinu við Hafnarstræti á Akureyri í yfir fjörutíu ár. Þar hefur aðgengi verið slæmt, rakaskemmdir í húsi og fyrir tæpu ári síðan var ákveðið að flytja hluta starfseminnar vegna myglu. Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir húsakostinn í Sunnuhlíð verða byltingu fyrir starfsfólk og bæjarbúa. „Til langs tíma er húsnæði alger grunnforsenda þess að maður haldi fólki og geti fengið nýtt fólk til að sinna þessari mikilvægu þjónustu“, segir Jón Helgi Björnsson forstjóri HSN.

RÚV fjallaði um opnunina í fréttum sínum í vikunni og má innslagið sjá hér

 

Enn eru laus rými til ráðstöfunar í Sunnuhlíð og áfram er sérstök áhersla lögð á að bæta við rekstraraðilum í heilsutengdri þjónustu og verslun.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við leiga@reginn.is fyrir nánari upplýsingar.

Annað fréttnæmt

15. maí

Hverfahleðsla við Smáralind

Það gleður okkur að kynna „hverfahleðslu“ við Smáralind. Með henni bjóðum við nágrönnum okkar og öðrum upp á hefðbundna hverfahleðslu frá klukkan 19:00 til 08:00 að morgni þar sem slegið er verulega af mínútugjaldi.
19. apr.

Reginn og Hafnatorg eru bakhjarlar HönnunarMars

Reginn og Hafnartorg eru stoltir bakhjarlar HönnunarMars en hátíðin fer fram 3. - 7. maí. Hátíðin hefur farið fram árlega síðan 2009 og hefur Reginn verið samstarfsaðili hátíðarinnar síðan 2020.