Árni Jón Reginsson
mailto:ajr@reginn.is

 

Um reginn.is

Þetta er leiksvæði þar sem ég er að prófa eitt og annað þegar vinnunni sleppir. Hér er ég með aðgang að Linux og Windows netþjónum.

Ýmislegt í prófun

Eitt af þeim smámálum sem gaman er að taka upp aftur og aftur er að byggja upp Messaging Solution sem er ekki háð forritunarmálum, flutningsleiðum, netþjónum eða tækni. Núna síðast var ég að prófa ActiveMQ sem er Java lausn sem hægt er að keyra á næstum hvaða vélbúnaði sem er. Ég hef verið að leika mér með að smíða biðlara (java, php, perl) sem ég keyri á Linux vél á móti Windows þjóni.

Í þessum prófunum mínum reyni ég að notast eingöngu við Open Source hugbúnað

Vefsvæði

Annað sem ég er búinn að fá nóg af eða gefast upp á ;-)

  • Forritunarmálið Perl notaði ég sem tól til þess að sækja upplýsingar frá mörgum vefsvæðum (leitarvélar fyrir netföng) og birta sem eina samstæða leitarniðurstöðu. Þetta notaði ég um tíma með góðum árangri í http://my.eamil.address.is lausninni. Vandinn hér var sá að þetta var server-lausn þannig að ég fékk allar leitarniðurstöður til mín og það tók of mikla bandvídd þegar notendur voru orðnir fleiri en 1500 á dag. Því hætti ég að nota þessa aðferð og breytti lausninni í popup-glugga sem birtast í sér glugga fyrir hverja leitarvél.
  • Microsoft Message Queue - gafst upp á þessari lausn eftir fjölmargar tilraunur, helsta vandamálið var aðgangur að Queue þvert á Windows lén (domain) og einnig var nánast vonlaust að fá HTTP flutning til þess að virka með ásættanlegum hraða.